Rakkar
Korpúlfur

Korpúlfur

Skotís Korpúlfur

Korpúlfur eða Korpi eins og við köllum hann fæddist árið 2014. Mamma hans var Skotís Príma Ösp og Amma hans var Esja sem við fluttum inn frá Skotlandi. Korpúlfur er mjög ljúfur og tryggur heimilishundur Hann fylgist vel með öllu og vill taka virkan þátt í heimilislífinu. Hann er hvoru tveggja í senn, þrjóskur og ákveðinn en á sama tíma með ljúft skap. Korpúlfur hefur ekki farið á margar sýningar enda hefur það ekki verið hans áhugamál. Hann hefur þó fengið góðan sýningardóm – “Excellent". Korpúlfur er þjálfaður lestrarhundur og hefur tekið þátt í mörgum verkefnum fyrir verkefnið “Lesið fyrir hund” Hann er ljúfur og góður, frábær fjölskyldumeðlimur. Korpúlfur er orðin öldungur en ber aldurinn mjög vel.

Myndir

Korpúlfur
Korpúlfur
Korpúlfur
Korpúlfur