Golden Retriever hjá Skotís Ræktun

Skotís ræktun er í eigu Guðna B. Guðnasonar og Ástu Björnsdóttur

Hvernig byrjuðum við?

Sagan okkar

Esja Golden Retriever í íslenskri náttúru

Allt frá því við eignuðumst okkar fyrsta Golden hvolp, hana Korpu, árið 2001, höfum við haft mikla ástríðu fyrir þessari tegund. Korpa kom frá Súsönnu Poulsen sem er í raun guðmóðir okkar af annarri kynslóð ræktenda Goldena á Íslandi.

Á árunum 2001–2010 voru fáir ræktendur á Íslandi að rækta Golden Retriever hunda. Nokkur heilsufarsvandamál voru komin í stofninn og sökum þess hversu fáir ræktendur voru, var komin alvarleg hætta á of miklum skyldleika sem getur kallað fram heilsufarsvandamál.

Við lögðum því áherslu á að finna góða ræktendur í Evrópu sem áttu langa og góða ræktunarsögu, sérstaklega m.t.t. heilbrigðis og geðslags. Við höfum flutt inn ræktunarhunda frá virtum ræktendum í Skotlandi, Austurríki, Spáni og Ítalíu. Þaðan kemur ræktunargrunnurinn okkar sem hefur reynst okkur vel.

Skoða nánar

Okkar áherslur

Ræktunarmarkmið

Við stefnum að því að rækta heilbrigða Golden Retriever hunda með gott geðslag — góða heimilishunda með farsæla heilsufarssögu og góðan sýningarárangur sem bónus.

Heilsuprófanir

Allir foreldrar okkar eru heilsuprófaðir fyrir erfðasjúkdóma sem algengir eru í Golden Retriever kyninu. Heilbrigði er alltaf í fyrsta sæti.

Gott geðslag

Hvolparnir okkar alast upp í heimili með fjölskyldu og öðrum hundum, sem tryggir góða félagsfærni og frábært eðli.

Ævilangur stuðningur

Við bjóðum upp á stuðning og ráðgjöf alla ævi hundsins og tökum alltaf á móti hvolpum ef þörf krefur.

Nýjustu fréttir

Fréttir frá Skotís

Ræktun

Næsta pörun hjá okkur er áætluð haustið 2024

Stefnum á að para Romu okkar á móti Skotís Erosi sem kemur úr okkar ræktun og fæddist 2021.

Lesa meira →

Nýr hundur

Brandson nýjasti hundurinn okkar frá Spáni

Brandson kom til Íslands í jan. 2024. Hann kemur frá Ria Vela á Spáni og Dylan okkar er langalang afi hans.

Lesa meira →

Hafðu samband

Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar um ræktunina, hvolpana okkar eða bara til að ræða allt sem viðkemur Golden Retriever.

Senda tölvupóst