Næsta pörun hjá okkur er áætluð haustið 2024

Roma okkar er tík sem við keyptum á Ítalíu og kemur frá Della Val'DAveto (https://www.igoldendellaveto.it). Frá þessari ræktun hafa komið mjög fallegir hundar sem hafa náð langt á hundasýningum m.a. orðið BOB á Crufts. Roma er íslenskur ungliðasýningameistari og hefur fengið framúrskarandi dóma. Umfram allt er Roma mjög skemmtilegur karakter. Hún er klár með mikið vinnueðli og gæti eflaust orðið góður vinnuhundur en afi hennar í föðurætt er hundur sem var mikið notaður í veiði. Við stefnum á að para hana við Skotís Eros sem kemur úr okkar ræktun. Sá hundur er einstakur ljúflingur stór og fallegur rakki. Hann var sýndur einu sinni og fékk hæstu einkunn og frábæra dóma

Hafðu samband
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar um ræktunina, hvolpana okkar eða bara til að ræða allt sem viðkemur Golden Retriever. Við erum hér til að hjálpa þér að finna fullkominn fjölskyldumeðlim. Sendu okkur línu á skotisgolden@gmail.com eða hafðu samband á facebook síðunni okkar.
Senda Tölvupóst